Hinbíó fréttir

Málþing og Masterklass

E-mail Print PDF

Málþing: Kvikmyndir og minnihlutahópar

Norræna húsið, sunnudaginn  20. september, kl. 14:00

Kimberly Reed sýnir heimildamynd sína Efnispiltar á hátíðinni en hún hefur hlotið gríðarlega athygli. Myndin fjallar á einstakan hátt um kyngervi og sjálfsmynd og rekur persónulega fjölskyldusögu um geðveiki á nákominn hátt. Kimberly mun segja frá gerð myndarinnar og áhrifunum sem hún hefur haft. Fjallað verður um jaðarmenningu í kvikmyndum og hvernig kvikmyndir geta haft áhrif með því að koma sjónarmiðum minnihlutahópa á framfæri. Efnispiltar verður sýnd kl. 12 í Norræna húsinu og málþingið hefst að sýningu lokinni.

Hrafnhildur Gunnarsdóttir, kvikmyndagerðarmaður, stjórnar málþinginu en þátttakendur eru Kimberly Reed, Sigursteinn Másson, formaður Geðhjálpar, Anna Jonna Ármannsdóttir, formaður félagsins Trans Ísland.

Masterklassi með leikstjóranum João Pedro Rodrigues

Norræna húsið, föstudaginn 25. september kl. 10:45
 
João Pedro Rodrigues, leikstjóri í Brennidepli Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar, heldur masterklassa á hátíðinni. Hann nam kvikmyndagerð í Lissabon og hefur starfað bæði sem klippari og leikstjóri. Árið 2000 sendi hann frá sér Vofuna, sem vakti nokkra athygli í heimalandinu, en það var fyrst með fjórðu myndinni, Tvö á reki, að hróður hans óx og var hún sýnd á Kvikmyndahátíðinni í Cannes 2005. Nýjasta mynd hans, Að deyja sem karlmenni, er frá árinu 2009.  Nýjasta mynd hans er Að deyja sem karlmenni.