Fyrri hátíðir

E-mail Print PDF

Hinsegin bíódagar 2008  

Hinsegin kvikmyndaverðlaunin 2008 - Landsbyggðarkennarinn (Venkovský ucitel) eftir tékkneska leikstjórann Bohdan Sláma
Sérstök viðurkenning - Hún er strákur sem ég þekkti sérstaka viðurkenningu.

Í dómnefnd Hinsegin bíódaga 2008 sátu Viðar Eggertsson, Íris Ellenberger og Halla Kristín Einarsdóttir.  

Hinsegin bíódagar 2006

Á hátíðinni 2006 var lögð áherlsa á það að kynna myndir sem lýsa ýmsu því sem menn vilja láta liggja í láginni, margt sem hinsegin fólk þegir líka um sjálft – af ótta við að verða misskilið og auðmýkt. En til að gefa tilverunni merkingu er mikilvægt að fjalla um alla þætti hennar. Líf og reynsla transgender fólks, lesbíur af lágstéttum og lítilsvirtum uppruna, hommar sem tala máli fasisma og nasisma, samkynhneigt fólk sem verður fyrir kynferðislegri eða trúarlegri valdbeitingu í æsku.

Besta heimildamyndin
Hann sjálfur, Peter Berlin - That Man, Peter Berlin eftir Jim Tushinski frá Bandaríkjunum

Besta leikna mynd hátíðarinnar
Dularfull Snerting - Mysterious Skin eftir Gregg Araki frá Bandaríkjunum

Besta stuttmynd
Hver svo sem þú ert - Hvem du end er eftir Martin Strange-Hansen frá Damörku.

Dómnefnd
Heimildarkvikmyndir og stuttmyndir
Dagný Kristjánsdóttir, prófessor
Hannes Páll Pálsson, listrænn stjórnandi
Kristín Pálsdóttir, kvikmyndagerðarkona, formaður dómnefndar

Leiknar kvikmyndir
Kristín Ómarsdóttir, rithöfundur
Sveinbjörn I. Baldvinsson, handritshöfundur, formaður dómnefndar
Felix Bergsson, leikari og leikstjóri

Hinsegin bíódagar 2004

Besta heimildamyndin
Bandaríska myndin Brother Outsider ? The Life of Bayard Rustin (Bróðir og utangarðsmaður Bayard Rustin) eftir Nancy Kates og Bennett Singer. Í umsögn dómnefndar segir: Þetta vel gerða verk sýnir hversu merkilegt atgervi glatast fyrir fordóma samfélagsins. Litaraftur Bayards og kynhneigð olli því að starf hans, metnaður og andagift naut sín aldrei sem skyldi. Megi verðlaunaveitingin tjá þakklæti til þeirra afburða baráttu- og stjórnmálamanna sem hafa neyðst til að standa í skugga annarra.

Besta leikna mynd hátíðarinnar
Argentíska myndin Tan de repente (Skyndilega) eftir Diego Lerman. Í umsögn dómnefndar segir: Í þessari strangheiðarlegu og óbilgjörnu mynd lýsir höfundurinn nauðsyn hverrar manneskju til að sættast við sjálfa sig og rata þannig á merkingarbært líf. Falleg kvikmyndun og spennandi persónusköpun lofa góðu um frekari verk höfundar.

Besta stuttmyndin
Norska myndin Hjem til jul (Heim á jólum) eftir Frank Mosvold. Í umsögn dómnefndar segir: Þessi kvikmynd afvopnar okkur og afhjúpar okkar eigin fordóma um leið og við hlæjum að henni. Það er von okkar að þeir tímar renni upp þegar þessi kvikmynd hættir að vera fyndin vegna þess að samfélag okkar er þá komið óraveg frá þeim fordómum sem enn tengjast samkynhneigð.

Sérstök viðurkenning dómnefndar
Daddy and Papa (Pabbi og pápi) eftir Johnny Simmons sérstaka viðurkenningu dómnefndar vegna þess hve mjög hún snertir umræðu líðandi stundar. Í umsögn sinni lætur dómnefndin í ljósi þá von að íslenskar sjónvarpsstöðvar sjái ástæðu til að sýna þessa mynd í von um jákvæð áhrif á samfélagsumræðu og mótun löggjafar á Íslandi

Dómnefnd
Elísabet Ronaldsdóttir
Hanna María Karlsdóttir
Jankees Boer
Sigursteinn Másson.

 

Um Hinsegin bíódaga