Ætti ég virkilega
ÆTTI ÉG VIRKILEGA? Ismail Necmi TYRKLAND (New Visions) Oftar en ekki slær lífið skáldskapnum við. Hér er sögu innflytjandans snúið við ef svo má segja. Aðalsöguhetjan Petra er Þjóðverji sem flyst til Istanbul og tekst þar á við sitt eigið líf og hversdagslífið í borginni, í senn flókið og mótsagnakennt. Smám saman vitrast okkur líf hennar og við drögum þræðina saman: Istanbul, Þýskaland, fjölskyldan, vinirnir, dópið og dauðinn. Myndin er merkileg blanda heimildamyndar og leikinnar myndar sem teflir fram fólki hversdagsleikans í stað leikara. Ismail Necmi ferðast með kvikmyndavélina á mörkum veruleika og skáldskapar og fléttar saman margslungnar myndir úr draumum, raunveruleika og síbreytileika lífsins á súrrealískan hátt. Þriðjudagur 22. september, kl. 18:00. Háskólabíó 4 Laugardagur 26. september, kl. 18:00. Háskólabíó 2 
Þanin augu
ÞANIN AUGU Haim Tabakman ÍSRAEL (New Visions) Í heimi strangtrúaðra gyðinga í Jerúsalem stundar slátrarinn Aaron iðju sína, trú og fjölskyldulíf af óbilandi staðfestu. En dag einn drepur öngþveitið á dyr, hann hleypir hinum unga og myndarlega Ezri inn í líf sitt og ástríðan tekur völdin. Aaron vanrækir fjölskyldu sína og samfélag uns það tekur til sinna ráða og honum virðast öll sund lokuð. Aaron grípur þá til aðgerða sem ekki verða aftur teknar. Áhrifamikil lýsing á flóknum lögmálum heittrúaðs samfélags og óbilgjörnum hefðum þess. Fimmtudagur 17. september, kl. 16:00. Háskólabíó 2 Mánudagur 21. september, kl. 16:00. Háskólabíó 2 Þriðjudagur 22. september, kl. 22:00. Háskólabíó 2 Fimmtudagur 24. september, kl. 22:00. Hellubíó Laugardagur 26. september, kl. 14:00. Háskólabíó 2 
Vofan
VOFAN Joao Pedro Rodrigues PORTÚGAL (Focus on JPR) Sergio er ungur og myndarlegur verkamaður sem starfar á næturvöktum hjá sorphreinsunarfyrirtæki í Lissabon. Þótt samstarfskona hans Fatima sýni honum ósvikinn áhuga, getur Sergio ekki fyrir nokkurn mun fengið sig til að svara áhuga hennar, en kýs í staðinn að ráfa um borgina með hund fyrirtækisins. Á ferðum sínum lætur hann heillast af glæsilegu mótorhjóli og síðan hrokafullum eiganda þess, ungum manni sem ekki sýnir verkamanninum minnsta áhuga. Þegar Sergio horfist í augu við tilfinningar sínar, hallar hratt undan fæti og leiðin liggur inn í hættuleg sund ofbeldis, eymdar og niðurlægingar. Laugardagur 19. september, kl. 20:00. Háskólabíó 3 Sunnudagur 20. september, kl. 22:00. Háskólabíó 2 Þriðjudagur 22. september, kl. 18:00. Háskólabíó 1 
Vafningar
VAFNINGAR Mariu Beatty ÞÝSKALAND (Open Seas) Hin átján ára Lucille býr hjá ráðríkum föður sínum og frænku á afskekktu sveitasetri langt úr alfaraleið. Hana dreymir um að iðka skáldskap og komast í háskóla, en læknirinn, faðir hennar, vill að hún feti í fótspor hans og leggi stund á raunvísindi. Til að sleppa úr gíslingunni reynir hún í örvæntingu að svipta sig lífi, en lifir af og slasast illa. Faðirinn ræður föngulega hjúkrunarkonu til að annast dóttur sína þar til hún kemst til heilsu á ný, en samvistirnar við hjúkrunarkonuna kveikja blossa sem ekki er létt að slökkva. Heimilið logar í spennuþrungnum átökum í þessari erótísku spennumynd sem á sinn hugkvæma hátt skírskotar óspart til gamalla hryllingsmynda. Föstudagur 18. september, kl. 22:00. Hellubíó Mánudagur 21. september, kl. 16:00. Háskólabíó 1 Föstudagur 25. september, kl. 22:00. Háskólabíó 2
Úr rúmi í rúm
ÚR RÚMI Í RÚM Alexis Dos Santos BRETLAND (New Visions) Axl er tvítugur og rótlaus í leit að föður sínum. Fæddur á Spáni en hefur alist upp á faraldsfæti uns hann kemur til London þar sem hann leitar uppi enskan föður sinn og hefur samband við hann án þess að láta uppi hver hann sé. Hann flýtur gegnum lífið úr rúmi í rúm, frá elskhuga til elskhuga, en er oftast of drukkinn til að muna hvað gerðist kvöldið áður. Vera er frönsk, sérstök og viðkvæm afgreiðslustúlka í bókabúð í London. Hún fæst við drauga fortíðarinnar, og líkt og Axl felur hún sig fyrir heiminum með því að blekkja og forðast raunveruleg sambönd við aðra. Þau tengjast í gegnum hústökuumhverfið í London sem hér er málað skýrum dráttum í ljóðrænni lýsingu á þeim hjörðum ungmenna sem flakka um Evrópu. Laugardagur 19. september, kl. 20:00. Háskólabíó 3 Sunnudagur 20. september, kl. 20:00. Háskólabíó 3 Þriðjudagur 22. september, kl. 18:00. Háskólabíó 3 Laugardagur 26. september, kl. 16:00. Háskólabíó 4 
Tvö á reiki
TVÖ Á REKI Joao Pedro Rodrigues PORTÚGAL (Focus on JPR) Rui missir Pedro kærasta sinn í bílslysi kvöldið sem þeir halda upp á sitt fyrsta og eina trúlofunarafmæli. Odete, granni þeirra, glatar líka ástmanni sínum þegar hann neitar að eignast barn með henni. Odete birtist þá á líkvökunni sem haldin er yfir Pedro, stelur hring af hendi hans, síðustu gjöf Ruis til elskhuga síns, og tekur síðan að ímynda sér að hún gangi með barn Pedros. Í sorg sinni ánetjast Rui sjúkum hugarheimi Odete, en nær smám saman tökum á sársauka sínum og sorg, en Odete rekur lengra út á haf óra sinna, fjarri öllum veruleika. Bæði sameinast þau þó í óvæntu lokaatriði í þessari sérstæðu og umdeildu mynd. Laugardagur 19. september, kl. 20:00. Háskólabíó 3 Sunnudagur 20. september, kl. 18:00. Háskólabíó 4 Fimmtudagur 24. september, 18:00. Háskólabíó 1 
Rocky horror picture show
ROCKY HORROR PICTURE SHOW Jim Sharman BANDARÍKIN Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík býður áhugamönnum um ógleymanlegar bíósýningar upp á það fágæta tækifæri til að sjá eina frægustu og alræmdustu miðnæturmynd allra tíma, Rocky Horror Picture Show. Myndin er frá árinu 1976 og skartar Susan Sarandon og Barry Bostwick í aðalhlutverkum, að ógleymdum Tim Curry í hlutverki transakóngsins Dr. Frank-N-Furter. Hún er iðuleg nefnd „fremsta költmynd allra tíma“ og á sér gríðarlegan fjölda gallharðra aðdáenda um víða veröld. Fimmtudagur 24. september, kl. 22:00. Háskólabíó. 
Patrik 1,5 ára
PATREKUR 1,5 ÁRA Ellu Lemhagen. SVÍÞJÓÐ Göran og Sven þrá það sama og fólkið í hverfinu þeirra, að rækta garðinn sinn og njóta sumarsins í honum – og eignast börn. En blómin vilja ekki dafna, krakkarnir í götunni æpa „hommar hommar“ á eftir þeim og Göran líst ekkert á þá hugmynd að ættleiða barn því sjálfur brást hann eitt sinn skyldum sínum við konu og dóttur og hefur alla tíð síðan reynst lélegur faðir. Þegar félagsmálayfirvöld biðja þá um að taka að sér Patrek litla á öðru ári, þykist Sven sjá að nú séu heitustu draumar hans að rætast, og meira að segja Göran er ekki laus við tilhlökkun. En fóstursonurinn reynist vera 15 ára gamall vandræðaunglingur sem hleypir öllu þeirra lífi í uppnám, fullur fyrirlitningar á hommunum, fósturfeðrum sínum, og við taka átök sem virðast geta endað á hvaða veg sem er. Laugardagur 19. september, kl. 20:00. Háskólabíó 1 Miðvikudagur 23. september, kl. 22:00. Háskólabíó 3 Sunnudagur 27. september, kl. 14:00. Háskólabíó 4 
Mamma veit hvað hún syngur
MAMMA VEIT HVAÐ HÚN SYNGUR Barða Guðmundsson. ÍSLAND (Shorts program) Nanna er einstæð móðir sem býr með Guðna Geir, syni sínum, í miðborg Reykjavíkur. Þó að pilturinn sé kominn á þrítugsaldur heldur Nanna fast í einkasonininn og virðist staðráðin í að hrekja alla hugsanlegar tengdadætur í burtu. En dag nokkurn tekur samband þeirra mæðgina óvænta stefnu þegar Guðni Geir játar fyrir mömmu hvaða mann hann hafi að geyma. Sýnd í safni íslenskra stuttmynda 2 Laugardagur 19. september, kl. 20:00. Háskólabíó 2 Miðvikudagur 23. september, kl. 14:00. Hafnarhúsið 
Ég drap mömmu
ÉG DRAP MÖMMU Xavier Dolan. KANADA. Það er hinn tvítugi og hæfileikaríki Xavier Dolan sem leikstýrir, framleiðir, skrifar handritið og leikur aðalhlutverkið í þessari mynd. Myndin er byggð á hans eigin ævi og fjallar um samband samkynhneigðs unglings, Huberts, við móður sína, Chantale. Þau gera sér bæði grein fyrir því að á milli þerra er óbrúanleg gjá. Myndin vakti mikla athygli á Kvikmyndahátíðinni í Cannes í vor og fyrstu verðlaun í flokkinum Director’s Fortnight Þetta er frumsýning myndarinnar á Norðurlöndum. Fimmtudagur 17. september, kl. 22:00. Háskólabíó 2 Laugardagur 19. september, kl. 14:00. Háskólabíó 2 Þriðjudagur 22. september, kl. 16:40. Háskólabíó 2 Föstudagur 25. september, kl. 22:00. Háskólabíó 2 
Efnispiltar
EFNISPILTAR Kimberly Reed. BANDARÍKIN (Docs in Focus) Kimberly Reed snýr aftur í heimabæ sinn í Montana til að taka þátt í útskriftarafmæli í gamla skólanum sínum eftir 20 ára fjarveru. Þá var hann stjarna í fótboltaliði skólans, en nú er hún búin að ná sáttum við sjálfa sig og lifir sem kona. Helsta áhyggjuefnið er það hvort hún nái sáttum við ættleiddan bróður sinn sem á við geðræn vandamál að stríða. Eitt undrunarefnið tekur við af öðru og Kimberly tekst á við fjölskylduátök og leyndarmál sinna nánustu, meira að segja óvæntan skyldleika við Orson Welles og Ritu Hayworth. Spurningar um kyngervi, uppruna, ættir og upplag tvinnast saman í þessari einstæðu heimildamynd þar sem farið er vítt um svið, frá Montana til Króatíu, úr fangelsi á fótboltavöll, og glímt er við áleitnar spurningar um sjálfsvitund og sjálfsvirðingu, hvar við eigum heima, hverra manna við erum og ekki síst hvernig geðræn vandamál lita fjölskyldumyndina. Laugardagur 19. september, kl. 22:00. Hellubíó Sunnudagur 20. september, kl. 12:00. Norræna húsið Mánudagur 21. september, kl. 18:00. Háskólabíó 2 Miðvikudagur 23. september, kl. 16:00. Hafnarhúsið Fimmtudagur 24. september, kl. 18:00. Hellubíó 
Edie og Thea: óralöng trúlofun
EDIE OG THEA: ÓRALÖNG TRÚLOFUN eftir Grétu Ólafsdóttur og Susan Muska. ÍSLAND (Docs in Focus) Eftir 42 ára trúlofunarsamband eiga Edie og Thea loksins kost á því að ganga í hjónaband. Allt frá sjöunda áratug liðinnar aldar hafa þær verið óþreytandi baráttukonur og fengið margt að reyna, bæði í pólitík og einkalífi. Eins og Edie segir: „Við héldum okkar striki með þeim hæfileikum sem við höfðum til að finna hamingjuna í erfiðleikunum.“ Enda eru það hrein dauðyfli sem ekki hrífast af ástarsögu þessara einstæðu kvenna sem staðið hafa saman gegnum þykkt og þunnt í nær hálfa öld. Fimmtudagur 17. september, kl. 18:00. Hafnarhúsið Sunnudagur 20. september, kl. 18:00. Hellubíó Miðvikudagur 23. september, kl. 18:00. Hellubíó Fimmtudagur 24. september, kl. 18:00. Háskólabíó 2 
Á vegum tvíkynhneigðra
Á VEGUM TVÍKYNHNEIGÐRA Brittany Blockman og Josephine Decker. BANDARÍKIN (Docs in Focus) Í þessari hressilegu heimildamynd henda tvær kvikmyndagerðarkonur hafurtaski sínu upp í bíl og leggja af stað um Bandaríkin til þess að komast að því hvaða augum landar þeirra líta tvíkynhneigð. Á leiðinni koma þær á marga skemmtilega og kostulega staði og taka viðtöl við sundurleitan hóp fólks, vegfarendur, fræðinga, klappstýrur, foreldra, unglinga og börn. Er ungu fólki í dag kannski bara sama um þessar skilgreiningar allar? Í myndinni eru jafnframt raktar sögur fimm ungmenna í fjörugri og áhugaverðri mynd um efni sem hingað til hefur verið vanrækt. Föstudagur 18. september, kl. 16:00. Hafnarhúsið Laugardagur 19. september, kl. 18:00. Hellubíó Sunnudagur 20. september, kl. 13:00. Hellubíó Mánudagur 21. september, kl. 22:00. Hellubíó 
Að deyja sem karlmenni
AÐ DEYJA SEM KARLMENNI Joao Pedro Rodrigues. PORTÚGAL (Focus on JPR) Tonia er trans-kona og skær stjarna í næturklúbbum Lissabon. Heimur hennar snýst um kærastann, sem þarf sitt dóp daglega, og samkeppni við nýja og upprennandi stjörnu á himni næturklúbbanna. Tonia glímir líka við geðsjúkan son og síðast en ekki síst hrörnunina sem blasir við. Líkaminn er að hafna þeim skurðaðgerðum og hormónagjöfum sem hún hefur gengist undir til að verða sú sem hún er. Sílíkonið seitlar út úr brjóstunum, það er engu líkara en líkaminn sé í uppreisn og beinlínis að heimta aftur þann karlmann sem hann eitt sinn var, nú þegar endalokin nálgast. Mánudagur 21. september, kl. 20:00. Háskólabíó salur 3 Miðvikudagur 23. september, kl. 21:20. Háskólabíó salur 1 Laugardagur 26. september, kl. 22:00. Háskólabíó salur 4 
|
|