Á VEGUM TVÍKYNHNEIGÐRA
Brittany Blockman og Josephine Decker. BANDARÍKIN (Docs in Focus)
Í þessari hressilegu heimildamynd henda tvær kvikmyndagerðarkonur hafurtaski sínu upp í bíl og leggja af stað um Bandaríkin til þess að komast að því hvaða augum landar þeirra líta tvíkynhneigð. Á leiðinni koma þær á marga skemmtilega og kostulega staði og taka viðtöl við sundurleitan hóp fólks, vegfarendur, fræðinga, klappstýrur, foreldra, unglinga og börn. Er ungu fólki í dag kannski bara sama um þessar skilgreiningar allar? Í myndinni eru jafnframt raktar sögur fimm ungmenna í fjörugri og áhugaverðri mynd um efni sem hingað til hefur verið vanrækt.
Föstudagur 18. september, kl. 16:00. Hafnarhúsið
Laugardagur 19. september, kl. 18:00. Hellubíó
Sunnudagur 20. september, kl. 13:00. Hellubíó
Mánudagur 21. september, kl. 22:00. Hellubíó



