Ætti ég virkilega

E-mail Print PDF

ÆTTI ÉG VIRKILEGA?
Ismail Necmi
TYRKLAND (New Visions)

Oftar en ekki slær lífið skáldskapnum við. Hér er sögu innflytjandans snúið við ef svo má segja. Aðalsöguhetjan Petra er Þjóðverji sem flyst til Istanbul og tekst þar á við sitt eigið líf og hversdagslífið í borginni, í senn flókið og mótsagnakennt. Smám saman vitrast okkur líf hennar og við drögum þræðina saman: Istanbul, Þýskaland, fjölskyldan, vinirnir, dópið og dauðinn. Myndin er merkileg blanda heimildamyndar og leikinnar myndar sem teflir fram fólki hversdagsleikans í stað leikara. Ismail Necmi ferðast með kvikmyndavélina á mörkum veruleika og skáldskapar og fléttar saman margslungnar myndir úr draumum, raunveruleika og síbreytileika lífsins á súrrealískan hátt.

Þriðjudagur 22. september, kl. 18:00. Háskólabíó 4
Laugardagur 26. september, kl. 18:00. Háskólabíó 2

Hinbio