EDIE OG THEA: ÓRALÖNG TRÚLOFUN eftir Grétu Ólafsdóttur og Susan Muska. ÍSLAND (Docs in Focus)
Eftir 42 ára trúlofunarsamband eiga Edie og Thea loksins kost á því að ganga í hjónaband. Allt frá sjöunda áratug liðinnar aldar hafa þær verið óþreytandi baráttukonur og fengið margt að reyna, bæði í pólitík og einkalífi. Eins og Edie segir: „Við héldum okkar striki með þeim hæfileikum sem við höfðum til að finna hamingjuna í erfiðleikunum.“ Enda eru það hrein dauðyfli sem ekki hrífast af ástarsögu þessara einstæðu kvenna sem staðið hafa saman gegnum þykkt og þunnt í nær hálfa öld.
Fimmtudagur 17. september, kl. 18:00. Hafnarhúsið
Sunnudagur 20. september, kl. 18:00. Hellubíó
Miðvikudagur 23. september, kl. 18:00. Hellubíó
Fimmtudagur 24. september, kl. 18:00. Háskólabíó 2



