Efnispiltar

E-mail Print PDF

EFNISPILTAR
Kimberly Reed.
BANDARÍKIN (Docs in Focus)

Kimberly Reed snýr aftur í heimabæ sinn í Montana til að taka þátt í útskriftarafmæli í gamla skólanum sínum eftir 20 ára fjarveru. Þá var hann stjarna í fótboltaliði skólans, en nú er hún búin að ná sáttum við sjálfa sig og lifir sem kona. Helsta áhyggjuefnið er það hvort hún nái sáttum við ættleiddan bróður sinn sem á við geðræn vandamál að stríða. Eitt undrunarefnið tekur við af öðru og Kimberly tekst á við fjölskylduátök og leyndarmál sinna nánustu, meira að segja óvæntan skyldleika við Orson Welles og Ritu Hayworth. Spurningar um kyngervi, uppruna, ættir og upplag tvinnast saman í þessari einstæðu heimildamynd þar sem farið er vítt um svið, frá Montana til Króatíu, úr fangelsi á fótboltavöll, og glímt er við áleitnar spurningar um sjálfsvitund og sjálfsvirðingu, hvar við eigum heima, hverra manna við erum og ekki síst hvernig geðræn vandamál lita fjölskyldumyndina.

Laugardagur 19. september, kl. 22:00. Hellubíó
Sunnudagur 20. september, kl. 12:00. Norræna húsið
Mánudagur 21. september, kl. 18:00. Háskólabíó 2
Miðvikudagur 23. september, kl. 16:00. Hafnarhúsið
Fimmtudagur 24. september, kl. 18:00. Hellubíó

Hinbio 2009