PATREKUR 1,5 ÁRA
Ellu Lemhagen.
SVÍÞJÓÐ
Göran og Sven þrá það sama og fólkið í hverfinu þeirra, að rækta garðinn sinn og njóta sumarsins í honum – og eignast börn. En blómin vilja ekki dafna, krakkarnir í götunni æpa „hommar hommar“ á eftir þeim og Göran líst ekkert á þá hugmynd að ættleiða barn því sjálfur brást hann eitt sinn skyldum sínum við konu og dóttur og hefur alla tíð síðan reynst lélegur faðir. Þegar félagsmálayfirvöld biðja þá um að taka að sér Patrek litla á öðru ári, þykist Sven sjá að nú séu heitustu draumar hans að rætast, og meira að segja Göran er ekki laus við tilhlökkun. En fóstursonurinn reynist vera 15 ára gamall vandræðaunglingur sem hleypir öllu þeirra lífi í uppnám, fullur fyrirlitningar á hommunum, fósturfeðrum sínum, og við taka átök sem virðast geta endað á hvaða veg sem er.
Laugardagur 19. september, kl. 20:00. Háskólabíó 1
Miðvikudagur 23. september, kl. 22:00. Háskólabíó 3
Sunnudagur 27. september, kl. 14:00. Háskólabíó 4



