Rocky horror picture show

E-mail Print PDF

ROCKY HORROR PICTURE SHOW
Jim Sharman
BANDARÍKIN

Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík býður áhugamönnum um ógleymanlegar bíósýningar upp á það fágæta tækifæri til að sjá eina frægustu og alræmdustu miðnæturmynd allra tíma, Rocky Horror Picture Show. Myndin er frá árinu 1976 og skartar Susan Sarandon og Barry Bostwick í aðalhlutverkum, að ógleymdum Tim Curry í hlutverki transakóngsins Dr. Frank-N-Furter. Hún er iðuleg nefnd „fremsta költmynd allra tíma“ og á sér gríðarlegan fjölda gallharðra aðdáenda um víða veröld.

Fimmtudagur 24. september, kl. 22:00. Háskólabíó.

Hinbio 2009