ÞANIN AUGU
Haim Tabakman
ÍSRAEL (New Visions)
Í heimi strangtrúaðra gyðinga í Jerúsalem stundar slátrarinn Aaron iðju sína, trú og fjölskyldulíf af óbilandi staðfestu. En dag einn drepur öngþveitið á dyr, hann hleypir hinum unga og myndarlega Ezri inn í líf sitt og ástríðan tekur völdin. Aaron vanrækir fjölskyldu sína og samfélag uns það tekur til sinna ráða og honum virðast öll sund lokuð. Aaron grípur þá til aðgerða sem ekki verða aftur teknar. Áhrifamikil lýsing á flóknum lögmálum heittrúaðs samfélags og óbilgjörnum hefðum þess.
Fimmtudagur 17. september, kl. 16:00. Háskólabíó 2
Mánudagur 21. september, kl. 16:00. Háskólabíó 2
Þriðjudagur 22. september, kl. 22:00. Háskólabíó 2
Fimmtudagur 24. september, kl. 22:00. Hellubíó
Laugardagur 26. september, kl. 14:00. Háskólabíó 2



