Tvö á reiki

E-mail Print PDF

TVÖ Á REKI
Joao Pedro Rodrigues
PORTÚGAL (Focus on JPR)

Rui missir Pedro kærasta sinn í bílslysi kvöldið sem þeir halda upp á sitt fyrsta og eina trúlofunarafmæli. Odete, granni þeirra, glatar líka ástmanni sínum þegar hann neitar að eignast barn með henni. Odete birtist þá á líkvökunni sem haldin er yfir Pedro, stelur hring af hendi hans, síðustu gjöf Ruis til elskhuga síns, og tekur síðan að ímynda sér að hún gangi með barn Pedros. Í sorg sinni ánetjast Rui sjúkum hugarheimi Odete, en nær smám saman tökum á sársauka sínum og sorg, en Odete rekur lengra út á haf óra sinna, fjarri öllum veruleika. Bæði sameinast þau þó í óvæntu lokaatriði í þessari sérstæðu og umdeildu mynd.

Laugardagur 19. september, kl. 20:00. Háskólabíó 3
Sunnudagur 20. september, kl. 18:00. Háskólabíó 4
Fimmtudagur 24. september, 18:00. Háskólabíó 1

Hinbio 2009