ÚR RÚMI Í RÚM
Alexis Dos Santos
BRETLAND (New Visions)
Axl er tvítugur og rótlaus í leit að föður sínum. Fæddur á Spáni en hefur alist upp á faraldsfæti uns hann kemur til London þar sem hann leitar uppi enskan föður sinn og hefur samband við hann án þess að láta uppi hver hann sé. Hann flýtur gegnum lífið úr rúmi í rúm, frá elskhuga til elskhuga, en er oftast of drukkinn til að muna hvað gerðist kvöldið áður. Vera er frönsk, sérstök og viðkvæm afgreiðslustúlka í bókabúð í London. Hún fæst við drauga fortíðarinnar, og líkt og Axl felur hún sig fyrir heiminum með því að blekkja og forðast raunveruleg sambönd við aðra. Þau tengjast í gegnum hústökuumhverfið í London sem hér er málað skýrum dráttum í ljóðrænni lýsingu á þeim hjörðum ungmenna sem flakka um Evrópu.
Laugardagur 19. september, kl. 20:00. Háskólabíó 3
Sunnudagur 20. september, kl. 20:00. Háskólabíó 3
Þriðjudagur 22. september, kl. 18:00. Háskólabíó 3
Laugardagur 26. september, kl. 16:00. Háskólabíó 4



