Vafningar

E-mail Print PDF

VAFNINGAR
Mariu Beatty
ÞÝSKALAND (Open Seas) 

Hin átján ára Lucille býr hjá ráðríkum föður sínum og frænku á afskekktu sveitasetri langt úr alfaraleið. Hana dreymir um að iðka skáldskap og komast í háskóla, en læknirinn, faðir hennar, vill að hún feti í fótspor hans og leggi stund á raunvísindi. Til að sleppa úr gíslingunni reynir hún í örvæntingu að svipta sig lífi, en lifir af og slasast illa. Faðirinn ræður föngulega hjúkrunarkonu til að annast dóttur sína þar til hún kemst til heilsu á ný, en samvistirnar við hjúkrunarkonuna kveikja blossa sem ekki er létt að slökkva. Heimilið logar í spennuþrungnum átökum í þessari erótísku spennumynd sem á sinn hugkvæma hátt skírskotar óspart til gamalla hryllingsmynda.

Föstudagur 18. september, kl. 22:00. Hellubíó
Mánudagur 21. september, kl. 16:00. Háskólabíó 1
Föstudagur 25. september, kl. 22:00. Háskólabíó 2