Vofan

E-mail Print PDF

VOFAN 
Joao Pedro Rodrigues
PORTÚGAL (Focus on JPR)

Sergio er ungur og myndarlegur verkamaður sem starfar á næturvöktum hjá sorphreinsunarfyrirtæki í Lissabon. Þótt samstarfskona hans Fatima sýni honum ósvikinn áhuga, getur Sergio ekki fyrir nokkurn mun fengið sig til að svara áhuga hennar, en kýs í staðinn að ráfa um borgina með hund fyrirtækisins. Á ferðum sínum lætur hann heillast af glæsilegu mótorhjóli og síðan hrokafullum eiganda þess, ungum manni sem ekki sýnir verkamanninum minnsta áhuga. Þegar Sergio horfist í augu við tilfinningar sínar, hallar hratt undan fæti og leiðin liggur inn í hættuleg sund ofbeldis, eymdar og niðurlægingar.

Laugardagur 19. september, kl. 20:00. Háskólabíó 3
Sunnudagur 20. september, kl. 22:00. Háskólabíó 2
Þriðjudagur 22. september, kl. 18:00. Háskólabíó 1

Hinbio 2009